Magadansdísirnar

Magadansdísirnar voru, meðal annarra, valdar af Hinu Húsinu til að vera á starfslaunum hjá Reykjavíkurborg í sumar við skapandi sumarstörf. Við sömdum og æfðum dansa og tróðum svo upp víðs vegar um borgina, almenningi oft að óvöru. Tilgangurinn hjá okkur var bæði að fræða og skemmta almenningi með þessu fallega listformi. Þessi síða er heimild um þá vinnu sem við unnuð í sumar. Magadansdísirnar eru nú, eftir sumarstarfið, aftur orðnar hluti af sýningarhópi Magadanshúss Josyar Zareen.

föstudagur, ágúst 20

Menningarnæturdraumur

Nú líður senn að Menningarnótt okkar borgarbúa með tilheyrandi lífi og fjöri. Borgin mun iða af menningu og látum við Magadansdísirnar þátttöku í gleðinni að sjálfsögðu ekki framhjá okkur fara. Við munum dansa á háalofti Hins Hússins, en húsið verður troðfullt af uppákomum hinna ýmsu sumarhópa Hins Hússins langt fram á kvöld.

Þetta verður svanasöngur okkar Magadansdísanna í samstarfi við Hitt Húsið í sumar og munum við því vera með einskonar yfirlitsmagadanssýningu yfir hluta af því besta sem við sýndum á þeirra vegum í samstarfinu.

Við dönsum tvisvar, fyrst kl.16:25 og stendur sýningin yfir í tæpan hálftíma. Svo endurtökum við prógrammið kl.17:55.

Við vonum að það eigi allir eftir að njóta næturinnar í borginni út í yrstu æsar.

föstudagur, júlí 9

Lokahátið... en þó ekki alger endalok

Lokahátíðin í Ráðhúsinu var stórglæsileg. Allir þeir hópar sem ég sá koma fram voru mjög töff, skemmtilegir og hressandi (hver á sinn hátt). Krakkarnir sem mynduðu hópana voru einnig, margir hverjir, áhugaverðir karakterar. :)
Ég hefði viljað fylgjast betur með starfsemi hinna Skapandi starfshópanna í sumar en get sjálfri mér um kennt sökum annríkis og leti. Ég veit að ég missti af miklu.

Við dönsuðum á Ingólfstorgi í dag fyrir þáttinn Hjartslátt á Skjá einum. Það verður gaman að sjá hvernig það kom út. Þar voru nokkrir útlendingar sem stigu úr rútu sem kom frá Keflavíkurflugvelli og voru vægast sagt hissa að sjá austurlenskan dans á torginu. Af hverju ætli Ingólfstorg heiti annars Ingólfstorg?

Við munum líklega halda áfram að dansa eitthvað í sumar. Ef við myndum hætta núna, að hætti kaldra kalkúna, myndum við eflaust fá fráhvarfseinkenni og upplifa mikla vanlíðan.

Hér kemur svo smá korní kveðjuvísa:

Við lögðum af stað í ferð sem var hvorki mikils- né einskisverð.
Gerðum eitthvað úr engu og ekkert úr öðru og lærðum margt
sem við vitum ekki enn að við höfum lært.
Það sem við áorkuðum er kannski ekki mikið en við erum örlítið breyttar fyrir vikið.
Við höfum verið þreittar, þunnar, úrillar og ofkeyrðar en við lifðum það af og rúmlega það og þetta hefur verið gaman og gefið okkur margt.
Við þökkum ykkur sem voru með og komu að, sem unnuð ykkar starf og meira en það,
sem gerðu okkur greiða og tókuð ykkur tíma.
Það er dýrmætt að eiga eitthvað sem er ekki hægt að geyma
og mikilvægastar eru þær minningar sem auðvelt er að gleyma.
Ekki gleyma okkur!
Magadansdísirnar.

fimmtudagur, júlí 8

Myndir frá Lokahátíðinni

Er búin að skella inn nokkrum myndum sem Elín vinkona tók. Skrifa svo eitthvað gáfulegra á morgun eftir góðan nætursvefni :)

mánudagur, júlí 5

Uppgjör fyrir lokadaginn

Ég er að átta mig á því að tímabilinu okkar í þessu skemmtilega starfi hjá Hinu Húsinu er alveg að ljúka. Það eru bara þrír dagar eftir ... það verður voða skrýtið að hætta þegar við höfum verið í svona mikilli törn ... manni finnst þetta bara vera orðinn hluti af eðlilegu, daglegu lífi, að sýna magadans fyrir gestum og gangandi, sífellt að koma nýju fólki á óvart.
Ég get ekki sagt annað en að tímabilið hefi verið hið skemmtilegasta og lærdómsríkasta. Við stelpurnar í hópnum höfum kynnst enn betur en við gerðum og magadans er orðið aðeins þekktara fyrirbæri fyrir vikið. Ég vona að eftir törnina okkar í skapandi sumarhópunum munum við halda áfram samstarfi Magadansdísanna að einhverju leiti ...

Fyrir þá sem bíða örvæntingafullir eftir nýjum myndum af dísunum í myndaalbúminu okkar, þá eru myndir vonandi væntanlegar hvað úr hverju til okkar frá ýmsum aðilum.

Annars er það títt að við höfum verið að dansa undanfarið í nýju dísarbúningunum okkar, en það eru þægilegir toppar og falleg pils með peningabeltum ... og við erum allar í stíl, hver í sínum lit, við köllum þá blómabúningana okkar ... voða fínar!
Í gær dönsuðum við einmitt í búningunum, á einu því skemmtilegasta "giggi" hingað til ... á götumarkaði Klink og Bank ... stemningin var svo frábær, það hættu allir því sem þeir voru að gera og vildu ekki að við hættum. Við vorum mjög snortnar yfir viðbrögðunum og góðum anda.

Eins og ég sagði, þá eru þrír dagar eftir og nú gefum við allt í botn fyrir lokasprettinn!

föstudagur, júlí 2

Föstudagsflæði, bræði, æði, pæði, svæði og gæði.

Föstudagsflæði:
Í dag dönsuðum við Magadansdísir á tveimur stöðum. Fyrst dönsuðum við á leikskólanum Laufásborg og síðan á seinasta Föstudagsflippi hins hússins.
Bræði?:
Á Laufásborg fór einn strákur að hágráta þegar við byrjuðum að dansa. Hann hefur kannski haldið að við værum grýlur eða nornir... eða kannski var tónlistin bara dáldið of hátt stillt fyrir viðkvæm eyru.
Æði:
Stelpurnar voru yfir sig hrifnar og héldu að við værum prinsessur sem ættu heima á klósettinu sem við skiptum um föt á.
Pæði:
Þegar við dönsuðum á Föstudagsflippinu var veðrið frekar grátt. Af þeim sökum voru ekki margir Íslendingar á ferð en mjög mikið var af útlendingum í skærlituðum regngöllum.
Svæði:
Í seinna skiptið sem við dönsuðum skiptum við um stað og vorum á Austurvelli í stað Lækjatorgar af pólitískum ástæðum sem eru mér ókunnar.
Gæði:
Þess ber að nefna að Steinar úr Hinu húsinu var mjög hjálplegur og sætur við okkur í dag. Ég kann alltaf betur og betur við þá Músarholunga. En þannig er það víst (og rannsóknir styðja)... að því oftar sem maður sér (eða heyrir) eitthvað, því betur líkar manni við það. ;)

fimmtudagur, júlí 1

Hvað hafa svo Magadansdísir verið að bardúsa undanfarið?

Þar sem að þetta blogg er líka eiginleg lokaskýrsla er rétt að minnast á undanfarin "gigg".

Föstudagsflipp. Föstudagsflippið seinasta föstudag var einstaklega flippað... svo flippað að það var haldið í Kringlunni vegna leiðinlegs veðurs. Það var einstaklega góð hugmynd og fær Hitt húsið tvo þumla upp frá mér og gestum og gangandi fyrir vikið :)

Á félagsheimili alraðra á Aflagranda vorum við seinar. Eh, úps. Sem var mjög leiðinlegt... en, eftir að við dönsuðum var kátt á hjalla og við fengum appelsín og konfekt. Þar fengum við líka að glugga í Séð og heyrt sem við vorum í. Kristínu fannst myndirnar af sér vera ljótar... en mér finnst hún einstaklega fín á þeim öllum og kát og sæt (eins og alltaf). Mér fannst ég hinsvegar vera ljót á myndunum. En við gátum allavega allar verið sammála að Hrafnhildur var ýkt sæt á þeim. Það var mjög leiðinlegt að Sunna var ekki með okkur á myndunum. Hún var þarna á vappi rétt hjá þegar þær voru teknar... en of slöpp til að dansa í roki og rigningu.

Í Hafnarhúsinu var glatt á hjalla og mættu fleiri en hafa gert hingað til, sem voru gleðifréttir, nema fyrir þá sök að ég flæktist í slæðunni minni og varð að athlægi samdansara og áhorfanda. Sunna átti hvað erfiðast með að halda niðri í sér hlátrinum, enda yndæl stelpa sem samgleðst vinkonum sínum á gleðistundum sem þessum :(

Á Hareem sýningu magadanshússins dönsuðum við, ásamt öðrum magadanspæjum sem fóru á kostum. Síðan fórum við í magadanspartý heima hjá Josy með öllum skvísunum.

Á Kjarvalstöðum dönsuðum við daginn eftir og það mætti ein gömul kona og lítil stelpa sem var í samfloti með henni. Þær voru mjög ánægðar með einkadansinn en við vorum frekar þreittar og beiglaðar eitthvað.

Ólympíuleikar Ingunnarskóla í dag voru algjör snilld. Krakkarnir voru geðveikt skemmtilegir og fannst við mjög fyndnar að vera að dansa magadans. Þeir komu með nokkur snilldarkomment og ég átti erfitt með að skella ekki upp úr á meðan á dansinum stóð. Þegar við mættum var ég spurð hvort ég væri Stekkjastaur og þegar við fórum gargaði einn strákurinn: Hún horfði á mig allan tímann!

Leiðinlegast er samt að ég náði ekki neinum myndum frá þessum stöðum. Á sumum þeirra voru teknar myndir... en þær eru einhverstaðar á reiki í glundroða alheimsins og ólíklegt er að ég komist yfir þær... allavega í bráð.

Mér finnst líka mjög leiðinlegt að þetta tímabil sé bráðum á enda. Þetta er búið að vera allt of fljótt að líða. Hóparnir eru að gera svo góða hluti í því að auðga menningarlíf og kridda tilveruna. Þið eruð öll frábær... og þegar ég segi þið þá meina ég... ég. ;)

föstudagur, júní 25

Endurnærðar

Jæja, þá höfum við tekið okkur smá sýningarpásu og erum endurnærðar fyrir vikið. Sýningardagskráin hefst aftur hjá okkur í dag. Í sýningarpásunni náðum við að æfa okkur og bæta inn nýjum dönsum og gera dagskrána okkar enn fjölbreyttari ... en við höldum náttúrulega áfram að sýna hina dansana okkar líka, ásamt þjóðbúningadansinum vinsæla sem við sömdum fyrir 17.júní.

Það hefur verið staðfest að ekki verður af Föstudagsflippinu hjá úti-hópunum á Lækjartorgi í dag sökum veðurs .... en í staðin verðum við í Kringlunni!!! Það verður ekkert smá gaman að koma fólki þar á óvart!

Við vonum bara að enginn verði stórsvekktur, standi í rigningunni á Lækjartorgi og bíði eftir því að Magadansdísirnar stígi á stokk! ... :)

sunnudagur, júní 20

Annasamur laugardagur, afslappaður sunnudagur

Á laugardeginum 19. júní var frekar mikið um að vera hjá okkur magadansdísum.
Við byrjuðum daginn á því að dansa í Hafnarhúsinu og Daníel tók myndir. Það var ekki mjög margt um manninn (hugsanlega vegna útskrifta Háskóla Íslands og kvennahlaupsins) en þeir sem á horfðu voru mjög hrifnir.

Eftir það skelltum við okkur á sundlaugargrill Götuhersins. Þar var hvílík stemning. Það var sumarfiðringur í fólkinu og allir hressir og kátir. Þegar við mættum var tónlistarflutningur í fullu fjöri í boði Eika og félaga. Kalli Dáðadrengjasnáði var svo indæll að taka myndir af okkur dansa. Auk þess tók hann nokkrar myndir af sér sem komu okkur magadansdísum skemmtilega á óvart (myndirnar má sjá undir hlekkinum: Grill götuhersins). Kalli ætti kannski bara að fara að snúa sér að ljósmyndabransanum því myndirnar voru margar hverjar helvíti skemmtilegar verð ég að segja. Í grillinu var skorað á okkur í magadans "battle" en við urðum að svíkjast undan þeirri áskorun, með loforði um að standast hana síðar, því við vorum að verða of seinar á næsta dansstað. Ég held mér sé óhætt að segja að ég muni mæta í grillveislur öryrkja héreftir... þar er sko haldið uppi almennilegu fjöri.

Eftir það dönsuðum við í brúðkaupi. Brúðurin var í rosalega flottum kjól (enda er það víst hefðin). Í brúðkaupinu var ég næstum búin að kveikja í slæðunni minni með því að sveifla henni yfir kerti sem voru á borðinu en rétt slapp. Guðmundur Bjargmunds tók myndir fyrir okkur, enda prýðispiltur.

Þarnæst skelltum við okkur í afmæli Ragnhildar magadansmærar. Veitingarnar í afmælinu voru lygilega góðar... svo ekki sé minnst á frábæra bollu. Þegar líða tók á kvöldið skemmti Helga Braga gestum með grínleik og dansaði fyrir þá magadans. Magadansdísirnar stigu svo á stokk með gestadansaranum Önnu Dóru Ófeigsdóttur. Josy Zareen magadanskennari okkar tók myndir af öllu saman fyrir okkur sem var frábært nema fyrir þá sök að það tók enginn mynd af henni :( Ragnhildur var hæstánægð með Helgu og okkur hinar og við vorum alveg jafn ánægðar með hana og frábæra veislu.

Í dag (sunnudegi) dönsuðum við síðan á Kjarvalsstöðum í hádeginu. Ljósmyndari Músarholunnar kom og tók myndir. Hann á flotta myndavél og flotta skó.

Magadanskveðja... Malika

Tímabilið hálfnað

Þá er skapandi-sumarstarfs-tímabilið hjá okkur hálfnað. Nú breytast áherslur hópsins lítillega. Við höfum verið með mikið kynningarstarf í gangi sl. þrjár vikur, sýnt þaulæfða dansa vítt og breytt um borgina fyrir ólíku fólki og komið fram í fjölmiðlum. Við höldum því starfi auðvitað áfram, en áherslan á þann þátt starfsins mun minnka núna.

Í síðustu viku byrjuðum við að semja dansa og sömdum meðal annars 17.júní dansinn okkar. Næsta vika fer að miklu leyti í það að semja vandaðan, frumsaminn dans sem hópurinn sýnir í Ráðhúsinu 7.júlí. Einnig erum við að skoða samstarf við tónlistarfólk til að troða upp með okkur í Listasafni Reykjavíkur einhverja helgina.

Þessar síðastu vikur hafa verið mjög annasamar hjá hópnum og við höfum komist að því hvað það tekur mikið á að vera í sýningargeiranum og sýna á hverjum einasta degi. En það er líka alveg ofsalega gaman hjá okkur og ég verð að segja, að það er svo frábært fyrir hópinn að hafa fengið þetta tækifæri til að framkvæma hugmyndir okkar og fá að vinna við þær. Alveg einstakt tækifæri. Ég er Hinu Húsinu afar þakklát.

laugardagur, júní 19

Magadans í íslenska þjóðbúningnum

Á Þjóðhátíðardaginn dönsuðum, niðrí miðbæ Reykjavíkur, við frumsaminn slæðudans og umbreyttan hópdans í búningum sem minntu á íslenska þjóðbúninginn við góðar undirtektir. Við höfum ákveðið að endurtaka leikinn á morgun (sunnudag) í Listasafni Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum kl.12 fyrir þá sem misstu af okkur á 17.júní.

Annars munum við líka gera dansinn í dag í Hafnarhúsinu, en þá verðum við bara tvær, sökum anna hjá hinum ...