Magadansdísirnar

Magadansdísirnar voru, meðal annarra, valdar af Hinu Húsinu til að vera á starfslaunum hjá Reykjavíkurborg í sumar við skapandi sumarstörf. Við sömdum og æfðum dansa og tróðum svo upp víðs vegar um borgina, almenningi oft að óvöru. Tilgangurinn hjá okkur var bæði að fræða og skemmta almenningi með þessu fallega listformi. Þessi síða er heimild um þá vinnu sem við unnuð í sumar. Magadansdísirnar eru nú, eftir sumarstarfið, aftur orðnar hluti af sýningarhópi Magadanshúss Josyar Zareen.

þriðjudagur, júní 1

Fyrsti starfsdagurinn

Jæja, þá hefst fyrsti starfsdagur Magadanshópsins Dóranna. Hann hefst á því að við hittum alla hina hópana sem starfa við "skapandi sumarstörf" hjá Hinu Húsinu í sumar og hver hópur kynnir sína starfssemi. Í rauninni hófst starfssemin óformlega hjá okkur í gær þegar við hittumst, ræddum um sumarstarfið og æfðum sýningaratriðið fyrir fundinn í dag ... framá miðnætti.
En nú veit ég ekki hvernig þetta kemur út hjá okkur í dag, þar sem að helmingur hópsins (við Heiða) erum orðnar lasnar, og hinn helmingurinn (Sunna og Hrafnhildur) þurfa að fara kl.14!

Ég vona bara það besta. Kristína.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home