Magadansdísirnar

Magadansdísirnar voru, meðal annarra, valdar af Hinu Húsinu til að vera á starfslaunum hjá Reykjavíkurborg í sumar við skapandi sumarstörf. Við sömdum og æfðum dansa og tróðum svo upp víðs vegar um borgina, almenningi oft að óvöru. Tilgangurinn hjá okkur var bæði að fræða og skemmta almenningi með þessu fallega listformi. Þessi síða er heimild um þá vinnu sem við unnuð í sumar. Magadansdísirnar eru nú, eftir sumarstarfið, aftur orðnar hluti af sýningarhópi Magadanshúss Josyar Zareen.

laugardagur, júní 12

Hafnarhúsið

Við magadansdísirnar dönsuðum í Hafnarhúsinu í dag. Við fengum góðar viðtökur í Hafnarhúsinu bæði frá hjálpsömu starfsliði og áhorfendum. Ég var svo fegin að við vorum ekki bókaðar að dansa úti í dag því veðrið er ömurlegt. Hvasst, kalt og rigning. Veðrið hefur fylgt okkur vel eftir og í flestum tilvikum verið alveg kjörið miðað við dansstað.
Ljósmyndarinn okkar þurfti því miður (fyrir okkur) að bregða sér út úr bænum í sumarbústað núna um helgina en við erum að skoða það að fá gestaljósmyndara með okkur á morgun. Það væri mjög hressandi, sérstaklega í ljósi þess hve þéttskipuð dagskráin okkar er þá.