Gleðilega þjóðhátíð!
Jæja, nú er komið að því, við Magadansdísirnar stígum á svið seinna í dag á Þinpallinum svokallaða norðan við Ráðhúsið klukkan 15:35.
Síðustu dagar hafa farið í að klára búningana okkar og semja og æfa dansinn. Það var ekki fyrr en loksins í gær sem allt small saman, búningarnir passa á alla og atriðið okkar fullklárað og æft. Það er óhætt að segja að við verðum glæsilegar, þó ég segi sjálf frá.
Lokaæfingin var í gærkvöldi í sal Þórshamars og æfðum við til að ganga eitt í nótt. Josy og Kata kíktu yfir á okkur og gáfu okkur nokkra punkta hvað mætti betur fara og hvað væri flott. Það var mjög gott að hafa þær á staðnum og fá smá innsýn í sjónarhorn áhorfandans.
Þrátt fyrir mikið annríki undanfarna daga þá tókum við okkur tíma og dönsuðum fyrir unglinana á Droplaugarstöðum í gær, og fengum heldur betur góðar undirtektir.
Ég tók nokkrar myndir af okkur í nýju búningunum og að æfa en ég set þær ekki inn fyrr en í kvöld, eftir að við erum búnar að koma fram í þeim.
Nú er bara að flykkjast niður í miðbæ í góða veðrinu og syngja "Hæ, hó, jibbí jei og jibbí jei, það er kominn sautjándi júní"

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home