Barnaspítalinn og Barónsborg
Í gær dönsuðum við á leikskólanum Barónsborg og í dag á Barnaspítala Hringsins. Allir voru hressir og kátir á báðum stöðum, magadansdísir, starfslið og áhorfendur. Byggingarnar voru báðar nýlegar og fallegar. Barnaspítalinn er ótrúlega flottur að innan. Það var eins og að vera komin til útlanda að vera þarna inni. Kannski skellir maður sér þangað aftur, verslar í mötuneytinu, fer í sólbað og síðan á fyllerí... því þannig gerir maður víst í útlöndum. Spurning hvort það verði þó jafn vel þegið og dansinn.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home